Fréttir


Opna Byr golfmótið

Opna Byr golfmótið fer fram hjá golfklúbbnum Keili, Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði, laugardaginn 17. júlí en mótið hefur verið haldið árlega um nokkurt skeið við góða þátttöku. Haldin verður punktakeppni, þar sem hámarks forgjöf verður 18 högg og höggkeppni án forgjafar. Vegleg verðlaun eru í boði, eða allt að 40.000 kr. vöruúttekt. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í höggleik og fjögur fyrstu í punktakeppni.

Meira | Skrifað þann 15. júlí 2010



Byr afhendir skólastyrki

Seinni úthlutun skólastyrkja Byrs á þessu ári fór fram  miðvikudaginn 7. júlí og fengu 2 háskólanemar 200.000 króna styrki hvor og 4 framhaldsskólanemar 25.000 króna styrki. Allir námsmenn hjá Byr geta sótt um skólastyrki, sem eru veittir tvisvar á ári, en í þetta sinn bárust hátt í 300 umsóknir.

Meira | Skrifað þann 12. júlí 2010



Byr mun bjóða fasta krónutölu af íbúðarlánum í erlendri mynt

Öllum einstaklingum sem eru með fasteignalán í erlendri mynt til lengri tíma en 5 ára, með reglulegum afborgunum og veð í íbúðahúsnæði býðst nú að greiða lága mánaðarlega greiðslu fram til 31. mars 2011.  Greiðslurnar miðast við 5.000 krónur á mánuði fyrir hverja milljón.  Sem dæmi um greiðslubyrði yrði mánaðarleg upphæð afborgunar af láni sem var með upphaflegan höfuðstól að fjárhæð 13.000.000 því 65.000 kr.

Meira | Skrifað þann 09. júlí 2010



Vegna tilmæla Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands til fjármálafyrirtækja

Eins og kunnugt er kvað Hæstiréttur Íslands upp tvo dóma varðandi lögmæti lánsskuldbindinga í íslenskum krónum tengdra gengi erlendra gjaldmiðla en niðurstaðan varð sú að gengistrygging slíkra lána væri óskuldbindandi. Á meðan ekki hefur verið skorið úr um umfang og lánakjör þeirra samninga sem dómarnir ná yfir hefur Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands beint eftirfarandi tilmælum til fjármálafyrirtækja:

Miða skal vexti lánssamninga, sem að mati viðkomandi fjármálafyrirtækis inniheldur óskuldbindandi gengistryggingarákvæði, við vexti sem Seðlabanki ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum eða verðtryggðum lánum sem nú gilda á lánamarkaði í stað gengistryggingar og erlends vaxtaviðmiðs. Miða skal við framangreindar forsendur svo fljótt sem auðið er, eða eigi síðar en 1. september 2010.

Meira | Skrifað þann 30. júní 2010



Byr hf. krefst skaðabóta frá ákærðu í Exeter málinu

Byr hf. hefur lagt fram skaðabótakröfu á hendur þeim sem hafa verið ákærðir vegna lánveitinga í Exeter holding málinu. Byr hf. vill taka eftirfarandi fram að: Enginn þeirra sem ákærðir eru í málinu starfa hjá Byr hf. Auk þess hafa þegar verið gerðar verulegar breytingar á innra skipulagi félagsins til að tryggja að viðlíka mál geti ekki komið upp innan félagsins.

Meira | Skrifað þann 28. júní 2010



Dómar Hæstaréttar vegna fjármögnunarsamninga

Í tilefni af dómum Hæstiréttar sem kveðnir voru upp þann 16. júní sl. sem vörðuðu báðir fjármögnunarsamninga í íslenskum krónum með gengistryggingu, vill Byr koma eftirfarandi á framfæri. 

Meira | Skrifað þann 18. júní 2010



Frábær árangur Skuldabréfasjóðs Byrs

Skuldabréfasjóður Byrs er með hæstu 12 mánaða ávöxtun verðbréfasjóða sem fjárfesta eingöngu í ríkisskuldabréfum.

Meira | Skrifað þann 11. júní 2010



Byr horfir fram á við

Síðastliðna daga og vikur hefur verið unnið að því að móta framtíð Byrs og er nýtt skipurit, ný framkvæmdastjórn og stefnumótun fyrir félagið liður í því starfi. Allt miðar þetta að því að efla Byr og gera hann að vænlegum kosti sem fjármálafyrirtæki fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki.

Meira | Skrifað þann 09. júní 2010



Byr styrkir hátíð hafsins

Byr er stoltur styrktaraðili að hátíð hafsins sem verður haldin um helgina 5-6 júní. Byr hefur styrkt hátíðina í fjölmörg ár og erum við stolt af þeim stuðningi enda snýst hátíðin um allt sem viðkemur hafinu, menningu tengda sjómennsku, skip, fisk og fleira.

Meira | Skrifað þann 04. júní 2010



Breyttur opnunartími stórgreiðslukerfis Seðlabanka Íslands

Hinn 25. maí næstkomandi mun opnunartími stórgreiðslukerfis Seðlabanka Íslands styttast og verður kerfið frá þeim tímapunkti opið alla virka daga frá kl. 09:00 til 16:15. Utan þess tíma verður ekki hægt að millifæra fjárhæðir umfram 10 milljónir króna yfir í önnur fjármálafyrirtæki, hvorki í heild eða smærri upphæðum. Fjárhæðir umfram 10 milljónir verður enn sem áður hægt að millifæra allan sólarhringinn innan Byrs, ýmist í gegnum útibú okkar, ráðgjafaver eða heima- og fyrirtækjabanka.

Meira | Skrifað þann 21. maí 2010


Næsta síða

Stillingar