Fyrirtækjabanki
Með Fyrirtækjabankanum fá stjórnendur betri yfirsýn yfir fjármálin og spara sér tímafrekar símhringingar og bankaferðir. Í fyrirtækjabankanum er hægt að stunda öll helstu viðskipti og nálgast þau fjárhagslegu yfirlit og upplýsingar sem fyrirtækið þitt þarf á að halda.
Helstu kostir
- Fjölgreiðslur, margar innborganir - ein útborgun
- Allir reikningar greiddir á einum stað
- Yfirlit yfir reikninga, greiðslukort og skuldabréf
- Tenging við fjárhagsbókhald
- Yfirlit og stofnun á innheimtukröfum
- Umsókn og yfirlit yfir símgreiðslur
- Umsókn og yfirlit yfir erlendar ábyrgðir
Ekki hika við að senda okkur fyrirspurn eða hringja í síma 575-4000 til að fá nánari upplýsingar.
Nánari upplýsingar
Í greiðsluhluta Fyrirtækjabankans má meðal annars:
- Skoða greiðslusögu og prenta út kvittanir
- Millifæra og greiða alla almenna reikninga
- Senda inn greiðsluskrár úr bókhaldskerfum
- Greiða ógreidda reikninga án nokkurs innsláttar
Skoða má færslur hvenær sem er og prenta út yfirlit yfir alla reikninga og greiðslukort.
Einnig er hægt að fletta upp öllum greiðslum sem framkvæmdar hafa verið. Hægt er að sækja yfirlit í prentvænu útliti, í excel-skjali eða sækja yfirlit í rafrænu formi og keyra beint inn í bókhaldskerfi fyrirtækisins.
Notendum Fyrirtækjabankans stendur til boða heilsteypt innheimtuferli. Þar má meðal annars:
- Stofna og fella niður kröfur
- Finna kröfur eftir kennitölu greiðanda eða kröfunúmeri
- Senda inn kröfur úr bókhaldskerfum
- Fylgjast með innheimtuferli og greiðslusögu krafna
Í gegnum Fyrirtækjabankann er unnt að senda inn umsókn um símgreiðslu/erlenda millifærslu. Hægt er að fylgjast með afgreiðslu hennar, þ.e. hvenær greiðslan fer í gegn og á hvaða gengi. Hægt er að kalla fram yfirlit yfir allar eldri greiðslur flokkaðar eftir viðtakanda eða eftir greiðsludagsetningu. Hægt er að senda kvittanir á ensku eða íslensku í tölvupósti um leið og greiðslan er framkvæmd.
Með erlendum greiðslum í Fyrirtækjabankanum má meðal annars:
- Greiða út af gjaldeyrisreikningum
- Fylgjast með væntanlegum erlendum greiðslum
- Yfirfæra gjaldeyri á milli landa á einfaldan
- Uppfæra bókhaldið samdægurs og öruggan hátt
Hægt er að stjórna aðgangi starfsmanna að einstökum aðgerðum og á þann hátt sjá til þess að hver starfsmaður hafi einungis aðgang að þeim þáttum sem hann ber ábyrgð á. Með þessu móti aukast notkunarmöguleikar Fyrirtækjabankans til muna á sama tíma og eðlilegt aðgengi að upplýsingum og aðgerðum er tryggt. Með því ber starfsmaðurinn ábyrgð á sínum færslum og hægt er að rekja ákveðnar færslur til rétts starfsmanns.
Í Fyrirtækjabankanum býðst aðgangur að verðbréfaviðskiptum þar sem hægt er að kaupa og selja hlutabréf í Kauphöll Íslands og öllum verðbréfasjóðum í rekstri hjá sparisjóðum. Þar má auk þess skoða eigna- og viðskiptayfirlit ásamt fjölmörgum öðrum upplýsingum.
Með aðgangi að áhættu- og skuldastýringu er m.a. hægt að nálgast heildaryfirlit yfir skuldir í íslenskum krónum og erlendum myntum í Fyrirtækjabankanum.
Fyrirtæki gefa út reikninga og skjöl á Netinu. Fyrirtækjum gefst nú kostur á að birta útgefna reikninga í netbanka viðskiptavina sinna hvort sem um er að ræða Fyrirtækjabanka Byrs eða netbanka annarra banka og sparisjóða. Reikningurinn birtist í þeirri mynd sem viðskiptavinir þekkja hann og hægt er að smella á greiðsluhnapp til að greiða þann reikning sem verið er að skoða. Reikningarnir eru í framhaldinu aðgengilegir til uppflettingar fyrir greiðendur.
Byr býður fyrirtækjum upp á birtingu launaseðla í öllum netbönkum. Með þessari nýju þjónustu gefst fyrirtækjum kostur á að birta launaseðla í öllum netbönkum starfsmanna sinna hvort sem um er að ræða Fyrirtækjabanka Byrs eða aðra netbanka.
Einnig er Fyrirtækjabankinn öflug upplýsingaveita, m.a. er hægt að fá upplýsingar um gengi og þróun á verði hlutabréfa, kaup- og sölutilboð á Verðbréfaþingi ásamt upplýsingum um vísitölur og vexti Byrs.
