Tryggingar
Viðskiptavinum Byrs stendur nú til boða persónuleg ráðgjöf um vöru- og þjónustuframboð tryggingarfélagsins Allianz.
Helstu kostir
- Tryggð lágmarksávöxtun í viðbótarlífeyrissparnaði Allianz
- Slysatryggingar Allianz gilda allan sólarhringinn, hvar sem er í heiminum
- Örugg líftrygging sem veitir þínum nánustu raunverulega hjálp
- Peningarnir þínir eru í góðum höndum í sjóðum Allianz
Spurt og svarað
Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz veitir þér fjárhagslegt öryggi á síðustu æviárum þínum. Allianz tryggir að ávöxtun fari ekki niður fyrir ákveðið lágmark og er viðbótarlífeyrissparnaðurinn því örugg leið til að ávaxta þinn sparnað. Allianz tryggir þér einnig að:
- Mótframlag launagreiðanda, allt að 2% af launum bætist við þitt framlag.
- Launagreiðandi greiði iðgjöldin.
- Enginn fjármagnstekjuskattur verði tekinn af vaxtatekjum þínum.
Síðast uppfært: 18.júní.2010 | Efst á síðu
Allianz - fyrir barnið
Barnatrygging Allianz er einn öruggasti stuðningurinn sem þú getur veitt barninu þínu. Þú getur á auðveldan hátt lagt fyrir í sjóð sem veitir barninu þínu fjárhagslegt forskot og tryggir því möguleika á að koma undir sig fótunum í framtíðinni.
Forskot er sparnaður þar sem ákveðin er regluleg greiðsla inn á sjóð sem vex með barninu eða unglingnum. Sjóðurinn verður svo eign barnsins þegar foreldri eða sá sem er með sparnaðartrygginguna samþykkir það. Forskot er tilvalið fyrir pabba og mömmur, afa og ömmur, frænkur og frændur, eða alla þá sem vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja fjárhag barnanna sem þau tengjast.
Skoða nánar
Fáðu góð ráð um Forskot Allianz
UPR - barnaslysatrygging er bæði slysatrygging og sparnaður fyrir barnið þitt – slysatrygging til 18 ára aldurs og sparnaður til 25 ára um leið sparnaður, því iðgjaldið er greitt við 25 ára aldur ásamt tryggðri ávöxtun. Hægt er að taka sparnaðinn út sem eingreiðslu, veðsetja hann gegn láni eða geyma hann og taka út síðar sem mánaðarlegan lífeyri. Þá má einnig breyta honum í sparnaðarlíftryggingu
Skoða nánar
Fáðu góð ráð um UPR - barnaslysatryggingu Allianz
Síðast uppfært: 18.júní.2010 | Efst á síðu
Slys gera ekki boð á undan sér, þau dynja yfir alveg óvænt. Nokkrar sekúndur geta breytt lífi þínu til frambúðar. Slys eru því miður tíðari en flestir gera sér grein fyrir. 70% allra slysa eiga sér t.d. stað í frítíma fólks.
Risiko - slysatryggingar Allianz gilda allan sólarhringinn, hvar sem er í heiminum. Þær taka á þessum þáttum:
- Örorku
- Dánarbótum
- Lýta- og fegrunaraðgerðum
- Björgunarkostnaði
Skoða nánar
Fáðu góð ráð um Risiko - slysatryggingar Allianz
UPR - söfnunarslysatrygging Allianz er góð viðbót við Risiko slysatryggingarnar þar sem þú færð iðgjöldin endurgreidd í lok samningstímans auk ávöxtunar, hvort sem þú hefur fengið greiddar slysabætur á samningstímanum eða ekki.
Skoða nánar
Fáðu góð ráð um UPR - söfnunarslysatryggingu Allianz
Síðast uppfært: 18.júní.2010 | Efst á síðu
Líftrygging Allianz er hugsuð sem fjárhagsleg vernd fyrir nánustu aðstandendur hins tryggða. Allianz tryggir lágmarksávöxtun upp á 2,25%.
Skoða nánar
Fáðu góð ráð um líftryggingu Allianz
Söfnunarlíftrygging felur í sér að auk þess að eftirlifendur öðlist fjárhagslegt öryggi að tryggingaþega látnum, þá fá þeir þar að auki iðgjaldið endurgreitt ásamt öruggri ávöxtun í lok samningstímans.
Skoða nánar
Fáðu góð ráð um söfnunarlíftryggingu Allianz.
Síðast uppfært: 18.júní.2010 | Efst á síðu
Allianz er næststærsta fjárgæslufyrirtæki í heimi og byggir á yfir 50 ára reynslu af meðferð sjóða fyrir sína viðskiptavini. Allianz er með sérfræðinga fyrir hvern heimshluta, hverja fjármagnsupphæð og hverja fjárfestingarleið.
Allianz ávaxtar 30 sjóði sem hafa einkunnirnar „AAA“ – „AA“ – „A“ hjá Standard og Poors en það eru fleiri sjóðir en nokkuð annað félag í heiminum býður upp á. Um er að ræða skuldabréfasjóði, hlutabréfasjóði og blandaða sjóði.
Skoða nánar
Fáðu góð ráð um sjóði Allianz
Síðast uppfært: 18.júní.2010 | Efst á síðu
Allianz á Íslandi er alfarið í eigu Byrs. Alþjóðlega tryggingafélagið Allianz er með höfuðstððvar í Þýskalandi og hóf starfsemi sína árið 1890. Allianz er næst stærsta tryggingasamsteypa veraldar í dag. Tryggingarstarfsemi Allianz hefur verið samfelld sigurganga á tryggingamörkuðum í Þýskalandi og um allan heim. Allianz er löngu þekkt fyrir áreiðanleika sinn og traust og fékk árið 2000 hæstu einkunn matsfyrirtækisins Standard og Poors, eða „AAA“.
Síðast uppfært: 18.júní.2010 | Efst á síðu
