Sértæk skuldaaðlögun

Sértæk skuldaaðlögun er samkomulag sem Samtök fjármálafyrirtækja, Íbúðalánasjóður og Landssamband lífeyrissjóða hafa gert með sér um aðgerðir til aðstoðar skuldsettum heimilum í landinu, og er það úrræði sem tekur við ef sýnt þykir fram á að önnur vægari úrræði duga ekki til að ná fram varanlegri lausn á greiðsluvanda einstaklinga.

Sértæk úrræði eru ætluð einstaklingum og fela í sér samning milli kröfuhafa og lántaka um leið til að laga skulda- og eignastöðu lántakans að greiðslugetu hans. Lántakinn greiðir af skuldum sínum eins og greiðslugeta hans leyfir á samningstímanum en kröfuhafar geta fallist á eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á þeim kröfum sem eru umfram greiðslugetu. Gert er ráð fyrir sölu eigna umfram það sem nauðsynlegt er til venjulegs heimilishalds en miðað er við að í lok skuldaaðlögunartímabilsins haldi lántaki hóflegu íbúðarhúsnæði og einum bíl með viðráðanlegri greiðslubyrði. Ef lántaki stendur ekki við greiðslur í samræmi við gerðan samning um skuldaaðlögun geta kröfuhafar ákveðið að samningur falli niður.

Helstu upplýsingar

  • Úrræði fyrir þá sem eru í verulegum greiðsluvanda
  • Skulda- og eignastaða lántaka löguð að greiðslugetu 
  • Kröfuhafar geta fallist á eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á þeim kröfum sem eru umfram greiðslugetu
  • Lántaki heldur að lokum hóflegu íbúðarhúsnæði og einum bíl með viðráðanlegri greiðslubyrði
  • Sækja þarf um sértæk úrræði hjá ráðgjöfum Byrs

Úrræðið felur í sér eftirgjöf skulda til samræmis við greiðslugetu en eftir standi að lágmarki 110% fasteignalán og 110% bílalán.  Standi lántaki við samkomulagið yfir samningstíma sem eru þrjú ár verða skuldir vegna húsnæðis og bifreiða færðar niður í 110% af markaðsverði og eftirstöðvar annarra skulda felldar niður.

Umsókn um sértæk úrræði

Hægt er að sækja um sértæk eða önnur úrræði vegna skuldavanda með því að fylla út umsóknareyðublað sem finna má hér neðar. Umsóknina er hægt að fylla út rafrænt og skila í næsta útibú Byrs.

Ráðgjafar Byrs veita þér aðstoð og upplýsingar um þessi og önnur úrræði sem í boði eru. Hægt er að hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4000, með því að senda okkur fyrirspurn eða með því að koma í næsta útibú okkar.

Stillingar