5.000 kr. fastar greiðslur
Öllum einstaklingum sem tekið hafa íbúðalán (fasteignalán) í erlendri mynt með veði í íbúðahúsnæði stendur til boða að greiða 5.000 kr. fasta mánaðarlega greiðslu af hverri milljón af upprunalegum höfuðstól. Um er að ræða tímabundið úrræði sem gildir til 31.03.2011 eða þar til skorið verður úr um réttarágreining fyrir dómstólum.
Helstu upplýsingar
- Fyrir einstaklinga með íbúðalán (fasteignalán) í erlendri mynt með veði í íbúðahúsnæði
- Lántakandi greiðir 5.000 kr. af hverri milljón af upprunalegum höfuðstól láns
- Greiðslubyrði af 12.000.000 kr. láni verður 60.000 kr. á mánuði
- Skilyrði er að lánstími sé lengri en 5 ár og að afborganir séu reglulegar
- Enginn aukakostnaður
Ef lán er í vanskilum þarf að semja um þau áður en úrræðið tekur gildi. Umsóknin er einungis afgreidd ef skilyrði úrræðis eru uppfyllt.
Spurt og svarað
Ástæðan fyrir nýju úrræði er sú óvissa sem ríkir um lögmæti íbúðalána í erlendri mynt. Um er að ræða bráðabirgðalausn sem gildir til 31.03.2011 eða þangað til Hæstiréttur hefur skorið úr um lögmæti slíkra lána.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Já úrræðið er valkvætt. Sækja þarf um það sérstaklega og tekur það gildi frá og með 1. ágúst. Eftir þann tíma þarf að sækja um úrræðið fyrir 20. hvers mánaðar til að það taki gildi næstu mánaðamót á eftir.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Engu máli skiptir hvaða skuldaform er á láninu eða form trygginga, svo lengi sem lánað var til íbúðakaupa með veði í íbúðahúsnæði.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Þú getur sótt um úrræðið á heimasíðu Byrs eða með því að koma í næsta útibú. Uppfyllir þú þau skilyrði sem úrræðið felur í sér færðu sent heim skjal sem skila þarf undirrituðu í næsta útibú Byrs.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Úrræðið gildir til 31.03.2011 eða þar til skorið verður úr um réttarágreining fyrir dómstólum.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Já, úrræðið er uppsegjanlegt hvenær sem er og tekur uppsögnin gildi næstu mánaðamót á eftir.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Þá fer lánið í það greiðsluferli sem það var í áður en sótt var um úrræðið.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Sá mismunur sem myndast af þessum sökum bætist við höfuðstól láns og lengir hann um það sem því nemur.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Í einhverjum tilfellum kann það úrræði sem fyrir er á láninu að leiða til lægri greiðslubyrði en 5.000 kr. af hverri milljón. Best er að hafa samband við þinn ráðgjafa hjá Byr sem finnur réttu lausnina með þér.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Eitt af skilyrðum sem sett eru fyrir úrræðið er að lán sé í skilum. Séu vanskil fyrir hendi þarf því að koma þeim í skil eða semja um þau.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Of snemmt er að segja til um það í dag þar sem enn er beðið eftir dómum Hæstaréttar varðandi íbúðalán í erlendri mynt. Verði þau dæmd ólögleg mun Byr hlíta þeirri niðurstöðu og endurreikna lánin til samræmis við það.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Nei , kjósi lántakandi að nýta sér ekki úrræðið verður innheimt með sama hætti og nú er gert.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Þetta bráðabirgðarúrræði felur engan aukakostnað í för með sér.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
Um er að ræða viðmiðunartölu sem talið er að bæði lántakandi og lánveitandi geti sætt sig við, en hún er í flestum tilvikum lægri en lántakendur hafa hingað til greitt af erlendum lánum sínum. Standi greiðslan ekki á heilum þúsundi verður hún námunduð að næsta þúsundi. Telji lántaki sig hins vegar ekki ráða við greiðslubyrðina gætu önnur úrræði hentað betur. Best er að fara yfir málin með ráðgjöfum Byrs.
Síðast uppfært: 19.ágúst.2010 | Efst á síðu
