Fréttir
Opna Byr golfmótið
Skrifað þann 15. júlí 2010
Opna Byr golfmótið fer fram hjá golfklúbbnum Keili, Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði, laugardaginn 17. júlí en ræst verður út frá kl. 08:00. Mótið hefur verið haldið árlega um nokkurt skeið við góða þátttöku. Haldin verður punktakeppni, þar sem hámarks forgjöf verður 18 högg og höggkeppni án forgjafar. Vegleg verðlaun verða í boði, eða allt að 40.000 kr. vöruúttekt. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í höggleik og fjögur fyrstu í punktakeppni.
Mótsgjald er kr. 4.000 en hægt er að skrá sig og fá nánari upplýsingar á golf.is eða í síma 565 3360.
Byr hefur verið aðalstyrktaraðili Keilis um árabil og átt í afar farsælu samstarfi við klúbbinn. Óskum við klúbbsmeðlimum og keppendum góðs gengis á laugardaginn.
