Fréttir
Byr afhendir skólastyrki
Skrifað þann 12. júlí 2010
Frá vinstri: Salóme Rúnarsdóttir, verkefnastjóri á Verkefnastofu Byrs (gæða- markaðs- og þjónustumál), Gréta María Valdimarsdóttir, Perla Ósk Hjartardóttir, Helga Kristín Guðmundsdóttir og Hólmfríður Óladóttir, amma Guðmundar Ágústar sem gat ekki verið viðstaddur afhendinguna. Seinni úthlutun skólastyrkja Byrs á þessu ári fór fram miðvikudaginn 7. júlí og fengu 2 háskólanemar 200.000 króna styrki hvor og 4 framhaldsskólanemar 25.000 króna styrki. Allir námsmenn hjá Byr geta sótt um skólastyrki, sem eru veittir tvisvar á ári, en í þetta sinn bárust hátt í 300 umsóknir.
Styrkþegarnir á háskólastigi að þessu sinni eru þær Gréta María Valdimarsdóttir, sem er að hefja nám í vörustjórnun til Ms.c gráðu við tækniháskólann í Chalmers í Gautaborg, Svíþjóð, og Kristín Linda H. Hjartardóttir sem er í doktorsnámi í hjúkrun við University of Minnesota í Bandaríkjunum en hún er sérhæfð í geðhjúkrunarfræðum og hefur sérstakan áhuga á að bæta þjónustu við aldraða sem glíma við geðheilsuna.
„Ég er mjög þakklát og þessi styrkur mun koma sér afar vel,“ sagði Gréta María við afhendingu styrkjarins. „Ég er að fara í mastersnám til Gautaborgar og veit að þar er dýrt að lifa. Því datt mér í hug að sækja um styrk til Byrs en ég hef verið viðskiptavinur þar síðan ég var lítil.“ Gréta María lauk Bs.c. gráðu í iðnaðarverkfræði fyrir skemmstu. „Það var ekki fyrr en á þriðja árinu sem ég tók tíma í vörustjórnun og fann mig strax í því fagi. Kennarinn sem kenndi þá tíma vinnur einnig við Chalmers tækniháskólann í Gautaborg og því fór ég að skoða þann skóla nánar. Mér líkar við allt sem tengist þessu fagi, og svo eru foreldrar mínir með heildsölu svo ég get tengt það náminu.“
Styrkþegarnir á framhaldsskólastigi eru Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Flensborg, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, MS, Perla Ósk Hjartardóttir VÍ, og Helga Kristín Guðmundsdóttir, MS.
