Fréttir

Byr mun bjóða fasta krónutölu af íbúðarlánum í erlendri mynt

Skrifað þann 09. júlí 2010

Í tilmælum SFF til aðildarfélaga um innheimtu fastrar krónutölu af íbúðalánum í erlendri mynt er tilgreint að:

  • Greiðslur íbúðalána í erlendri mynt verði lækkaðar og festar tímabundið
  • Frá 1. ágúst greiða lántakendur sem þess óska 5.000 kr. af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls
  • Betri réttur lántakenda verði tryggður


Byr mun því bjóða:

  • Öllum einstaklingum sem tekið hafa íbúðalán (fasteignalán) í erlendri mynt með veði í íbúðahúsnæði að greiða lága fasta mánaðarlega greiðslu, þar til skorið verður úr um réttarágreining fyrir dómstólum, sbr. nánar hér að neðan.
  • Fasta mánaðarlega greiðslu að fjárhæð 5.000 krónur af hverri milljón til 1. nóvember n.k. Greiðslubyrðin miðast við upprunalegan höfuðstól lánanna, sbr. nánar hér að neðan.

Viðskiptavinum er þó frjálst að velja að halda áfram með það fastgreiðslufyrirkomulag sem þeir kunna að hafa nú þegar og þar með að halda áfram með lægri greiðslubyrði, með sambærilegum hætti og ofangreind tilmæli SFF gera ráð fyrir.


Fastar greiðslur til 31. mars 2011

Öllum einstaklingum sem eru með fasteignalán í erlendri mynt til lengri tíma en 5 ára, með reglulegum afborgunum og veð í íbúðahúsnæði býðst nú að greiða lága mánaðarlega greiðslu fram til 31. mars 2011.  Greiðslurnar miðast við 5.000 krónur á mánuði fyrir hverja milljón. Sem dæmi um greiðslubyrði yrði mánaðarleg upphæð afborgunar af láni sem var með upphaflegan höfuðstól að fjárhæð 13.000.000 því 65.000 kr.

Sækja verður sérstaklega um úrræðið á netinu eða í útibúum Byrs. Unnið er að umsóknarferlum og munu nánari upplýsingar verða birtar von bráðar.

Til baka

Stillingar