Fréttir
Vegna tilmæla Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands til fjármálafyrirtækja
Skrifað þann 30. júní 2010
Eins og kunnugt er kvað Hæstiréttur Íslands upp tvo dóma varðandi lögmæti lánsskuldbindinga í íslenskum krónum tengdra gengi erlendra gjaldmiðla en niðurstaðan varð sú að gengistrygging slíkra lána væri óskuldbindandi. Á meðan ekki hefur verið skorið úr um umfang og lánakjör þeirra samninga sem dómarnir ná yfir hefur Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands beint eftirfarandi tilmælum til fjármálafyrirtækja:
Miða skal vexti lánssamninga, sem að mati viðkomandi fjármálafyrirtækis inniheldur óskuldbindandi gengistryggingarákvæði, við vexti sem Seðlabanki ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum eða verðtryggðum lánum sem nú gilda á lánamarkaði í stað gengistryggingar og erlends vaxtaviðmiðs. Miða skal við framangreindar forsendur svo fljótt sem auðið er, eða eigi síðar en 1. september 2010.
Byr hefur nú þegar brugðist við tilmælum þessum og er vinna við undirbúning hafin. Vonir standa til þess að henni verði lokið sem allra fyrst til þess að eyða allri óvissu lántakenda þeirra lána sem undir ofangreind skilyrði falla.
Tilmæli Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands má finna í heild sinni á vef Seðlabanka Íslands.
