Fréttir
Byr hf. krefst skaðabóta frá ákærðu í Exeter málinu
Skrifað þann 28. júní 2010
Byr hf. hefur lagt fram skaðabótakröfu á hendur þeim sem hafa verið ákærðir vegna lánveitinga í Exeter holding málinu. Byr hf. vill taka eftirfarandi fram að: Enginn þeirra sem ákærðir eru í málinu starfa hjá Byr hf. Auk þess hafa þegar verið gerðar verulegar breytingar á innra skipulagi félagsins til að tryggja að viðlíka mál geti ekki komið upp innan félagsins.
„Það er mikilvægt að við horfum til baka og gerum hreint fyrir okkar dyrum og áttum okkur á því hvað fór úrskeiðis. Við lítum á það þannig að við höfum verið fórnarlömb í þessu máli þar sem miklir fjármunir töpuðust í tengslum við umræddar lánveitingar. Sú skaðabótakrafa sem nú hefur verið lögð fram er liður í því ferli“, segir Jón Finnbogason, forstjóri Byrs.
